17.07.2008 00:08:46 / berglind

Sumar

Sumarið er ekki tíminn til að halda uppi bloggi, únei. Yndislegt veður í dag. Hætti hálftíma fyrr úr vinnu og við Jónas gengum Laugaveginn og drukkum café latte og átum kleinu á Kaffi París undir berum himni. Eldaði svo bara sérdeilis fínan gúllasrétt sem ég læt fylgja hérna með. Mikið gasalega er nú ágætt að ramba á góðar útsölur. Við Jónas fórum í Outlet og keyptum 4 buxur á alls 7500 kr. Fórum í Tiger og keypti 2 rúllutertudiska sem einnig má nýtast sem eldfast mót fyrir heitan rúllubrauðrétt á samtals 400 kr. Keypti einnig 2 dúka á samtals 3000 kr í 1928. Er nú hætt, Vont að ég var að frétta af góðum búðum í Chania á Krít, en það er seinnitíma vandamál. 

Búin að hafa það rosa gott, nóg að gera og frá mörgu að segja, hef bara ekki eirð í lengri skriftir.

Gúllas m. sveppasmurosti

500 gr gúllas (svínagúllas)
paprikur eftir smekk
slatti af sveppum (ferskum)
sveppasmurostur
rjómi eða bara mjólk/ca 3 dl (notaði mjólk)

Krydda með salti, pipar, hvítlaukspipar, nautakrafti

Steiki gúllasið á pönnu og set í eldfast mót. Síðan steiki ég paprikuna og sveppina og set yfir gúllasið. Set sveppaostinn og mjólk saman í pott og bræði og helli síðan yfir gumsið í eldfastamótinu. Hita síðan í 20-30 mín í ofni

Gott að hafa borða hrísgrjón og hvítlauksbrauð með.

ausy skrifaði
Hæ, hvenær ferðu til Krítar? Ég fer 10 sept. og verð í viku;) Verðum í sambandi og segðu mér frá því sem við töluðum um síðast í síma. Ef þú manst hvað það var;)
er að reyna að vera duglegri að blogga núna, kemst voða lítið í tölvu, það er svo lélegt netsamband heima.

kv ausy
Berglind skrifaði
20. ágúst förum við sköturnar. Við verðum í bandi, margt að ræða :O)
ausy skrifaði
já hlakka til að heyra allt um þetta!

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.